Saturday, January 19, 2008

Súpuhlaup í dag

Ekki besta veðrið né færðin til hlaupa en súpan sem var í boði eftir æfingu tókst að narra mig út og þetta urðu fínir 12km í góðum hóp.
Í gær var ég rólegur fór bara 4km og vikutotal komið í 82km, og það er þá frí í boði á morgun eða að ég taki mánudagsæfinguna á morgun sem samkvæmt prógraminu eiga að vera 24km á 4:25-4:30 tempó, hundleiðinleg æfing sem verður kannski þolanleg á bretti horfandi á Ísland vinna Frakka :)

1 comment:

Anonymous said...

Bara kominn á netið, gott að geta fylgst með prógramminu því það er ekki inn í myndinni að verða á eftir þér á Laugaveginum :)